Endurmenntun Háskóla Íslands heldur reglulega fræðandi og skemmtileg námskeið fyrir áhugasama og hvetur þannig fólk til að kynna sér efni sem að öðrum kosti myndi ekki ná athygli þess.
Í október og nóvember verður forvitnilegt námskeið um mannát, titlað Mannát og menning, en í því ætlar Dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur, að fræða fólk um ólíkar birtingarmyndir mannáts, bæði í fortíðinni og samtímanum.
Síðustu daga hefur Endurmenntun auglýst námskeiðið á öllum helstu samfélagsmiðlasíðum og hafa glöggir lesendur tekið eftir sniðugri setningu í upphafi námslýsingarinnar, en þar er sérstaklega tekið fram að ekki sé um ræða matreiðslunámskeið. Í textanum kemur einnig fram að námsefnið verði matreitt á lifandi og skemmtilegan hátt.
Það er því ljóst að húmorinn er í hávegum hafður í Háskóla Íslands.