Bandaríska leikkonan Shelley Duvall er látin 75 ára að aldri.
Duvall, best þekkt fyrir leik sinn í kvikmyndum á við The Shining, Annie Hall og Roxanne, lést í svefni á heimili sínu í borginni Blanco í Texas.
Sykursýki og fylgikvillar hennar urðu Duvall að aldurtila.
Sambýlismaður hennar til margra ára, Dan Gilroy, staðfesti andlátið við The Hollywood Reporter.