Endurgerir myndina á nærfötum 66 ára

Sharon Stone hefur ekkert breyst á 32 árum.
Sharon Stone hefur ekkert breyst á 32 árum. Ljósmynd/Imdb/Instagram

Leikkonan Sharon Stone er einna þekktust fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Basic Instinct sem kom út árið 1992. Stellingin þar sem hún situr með krosslagðar fætur er sérstaklega eftirminnileg. Nýlega ákvað Stone að endurgera stellinguna. 

Stone klæddist nærfötum og hælaskóm og stillti sér upp á mynd á Instagram. Ekki fór á milli mála í hvaða mynd Stone var að vísa þrátt fyrir að 32 ár séu síðan að myndin kom út. 

Hollywood-stjarnan hefur þó ekki alltaf verið ánægð með þetta atriði. Hún hefur greint frá því að hún hafi verið plötuð til þess fara úr nærfötum, skipta um stellingu í tökum og sýna þannig að hún væri ekki í neinum nærfötum. Sagði hún að þetta atriðið hafi haft neikvæð áhrif á feril hennar. Einnig hefur hún látið hafa það eftir sér að atriðið hafi haft áhrif á forræðisdeilu hennar árið 2004. 

View this post on Instagram

A post shared by Sharon Stone (@sharonstone)

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ráð frá einhverjum þér eldri geta komið þér að gagni í dag og orðið til þess að auka tekjumöguleika þína. Líttu málin raunsönnum augum og þá sést að flest er í lagi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ráð frá einhverjum þér eldri geta komið þér að gagni í dag og orðið til þess að auka tekjumöguleika þína. Líttu málin raunsönnum augum og þá sést að flest er í lagi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir