Skrifaði undir skilnað degi fyrir andlát sitt

Eitt það síðasta sem Shannen Doherty gerði var að skrifa …
Eitt það síðasta sem Shannen Doherty gerði var að skrifa undir skilnaðarpappíra. AFP/VALERIE MACON

Banda­ríska leik­kon­an Shann­en Doherty gekk formlega frá skilnaði sínum aðeins einum degi fyrir andlát sitt. Doherty sem var fræg fyrir leik sinn í Beverly Hills 90201 og Charmed lést eftir erfiða baráttu við krabbamein á laugardaginn. 

Doherty gekk í hjónaband með ljósmyndaranum Kurt Iswarienko í október árið 2011. Þau skildu að borði og sæng í janúar árið 2023 en gengu ekki frá skilnaðinum fyrr en nýlega. Þegar Doherty sótti um skilnað í apríl í fyrra sagði talsmaður leikkonunnar að skilnaður væri það síðasta sem leikkonan vildi en hún ætti engra annarra kosta völ. 

Vefmiðillinn ET hefur skilnaðarpappírana undir höndum. Þar kemur fram að Doherty hafi skrifað undir föstudaginn 12. júlí. Iswarienko skrifaði undir degi seinna, eða sama dag og Doherty lést. Hjónin fyrrverandi deildu meðal annars um greiðslur en Doherty krafðist fjárhagslegs stuðnings. Doherty rökstuddi það á þann hátt að hún gæti ekki unnið en væri að gangast undir dýra læknismeðferðir til að lengja líf sitt. Á meðan væri Iswarienko að eyða peningum í lúxus. 

Shannen Doherty.
Shannen Doherty. AFP/Michael Tran
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ráð frá einhverjum þér eldri geta komið þér að gagni í dag og orðið til þess að auka tekjumöguleika þína. Líttu málin raunsönnum augum og þá sést að flest er í lagi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ráð frá einhverjum þér eldri geta komið þér að gagni í dag og orðið til þess að auka tekjumöguleika þína. Líttu málin raunsönnum augum og þá sést að flest er í lagi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir