Kate Tomas, kærasta bandaríska leikarans Andrew Garfield, þvertekur fyrir að hafa beitt göldrum til að tæla leikarann.
Tomas, sem starfar sem töfralæknir og norn, heldur regluleg námskeið í tælingum og er einnig með hlaðvarpsþáttinn The Friday Emails þar sem hún ræðir ýmis andleg málefni.
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins viðurkenndi Tomas að hafa neyðst til að taka námskeið sín úr sölu vegna ásakana um að hún hafi lagt álög á Garfield. Tomas segir galdra ekki spila rullu í sambandi hennar og Garfield en eins og segir í lagi Bubba Morthens, Við Gróttu: „Og hjartað hvíslar ástin er göldrótt“.
Samband Garfield, 40 ára, og Tomas, 42 ára, er fremur nýtt af nálinni en parið sást njóta kvöldverðar á franska veitingastaðnum Zinqué í Malibu í apríl.
Garfield hefur reynt eftir fremsta megni að halda einkalífi sínu fjarri sviðsljósinu, en samband hans og leikkonunnar Emmu Stone vakti mikla athygli á sínum tíma. Garfield og Stone, sem kynntust við gerð kvikmyndarinnar The Amazing Spiderman, voru saman í fimm ár. Sambandi þeirra lauk 2015.
Leikarinn hefur einnig verið orðaður við Ritu Ora og Phoebe Dynevor.