Kvikmyndin Hillbilly Elegy sem er byggð á ævisögu J.D. Vance, varaforsetaefnis Donalds Trumps, er nú komin í 10. sæti á vinsældarlista streymisveitunnar Netflix á Íslandi.
Kvikmyndin kom út árið 2020 og má því gera ráð fyrir því að nýjar vinsældir kvikmyndarinnar megi rekja til þess að Íslendingar séu að reyna fræðast meira um J.D. Vance, sem gæti orðið næsti varaforseti Bandaríkjanna.
Árið 2016 gaf Vance út ævisöguna Hillbilly Elegy, lauslega þýtt á íslensku sem Harmljóð sveitalubbans, og vakti bókin mikla athygli á sínum tíma. Árið 2020 lét Netflix gera kvikmynd byggða á bókinni og Ron Howard leikstýrði.
Vinsældir myndarinnar eru þó ekki aðeins að aukast á Íslandi.
Eins og mbl.is hefur áður fjallað um þá jókst áhorfið á kvimyndinni á Netflix í Bandaríkjunum um 1.179% fáeinum dögum eftir að Vance var útnefndur varaforsetaefnið á landsfundi repúblikana um miðjan júlí.
Forbes greinir frá því að bókin sjálf sem Vance gaf út árið 2016 sé einnig geysivinsæl um þessar mundir. Síðan að Vance varð varaforsetaefni þá hafa selst yfir 600 þúsund eintök af bókinni bæði rafrænt og á prenti.
Bókin rifjar meðal annars upp æsku Vance en hann ólst upp við erfiðar aðstæður í stáliðnaðarbænum Middletown í Ohio. Móðir hans var fíkill og segir Vance að þegar vanrækslan hafi verið sem mest hafi hann sumpart alið sig upp sjálfur. Var það í 9. bekk, en í 10. bekk flutti hann til ömmu sinnar.
„Tölfræðin segir okkur að framtíðarhorfur hjá krökkum eins og mér eru ekki bjartar – að ef þeir eru heppnir komist þeir hjá því að lenda í velferðarkerfinu og ef þeir eru óheppnir þá deyi þeir af ofskammti af heróíni,“ skrifar Vance í bókinni.
Mikil fátækt var á heimili ömmu hans en hún gaf honum reiknivél og krafðist þess að hann stæði sig vel í skólanum.