Það var heldur betur stuð og stemning á Húsavík í gær, og hefur raunar verið síðustu daga. Bæjarhátíðin Mærudagar fer nú fram og var aðaldagurinn í gær.
Í gærkvöldi fóru Mærutónleikarnir fram. Meðal þeirra sem komu fram voru Birgitta Haukdal, Birnir, Einar Óli og hljómsveitin Færibandið.
Fjörinu er þó ekki lokið því að í dag verður haldið í skrúðgöngu klukkan 13 og svo fer Mæruhlaupið fram klukkan 15, en í því hlaupa krakkar og finna hús sem merkt eru með hvítri veifu og safna mæru.