Tom Daley mættur aftur með prjónana

Samsett mynd

Breski dýfingamaðurinn Tom Daley er mættur á Ólympíuleikana og að sjálfsögðu vopnaður prjónum og garni.

Daley, sérstakur áhugamaður um prjón og prjónaskap, sást prjóna ullarpeysu er hann fylgdist með þriggja metra dýfingum kvenna í París á dögunum. Dýfingamaðurinn hefur birt þó nokkrar færslur af prjónaferlinu á samfélagsmiðlum og virðist honum miða vel áfram. Daley er kominn langt á leið með peysuna sem er í bresku fánalitunum og með nafn hans á bakinu.

Prjónaskapur Daley hefur vakið mikla lukku meðal netverja og fylgjast margir með honum sinna þessu skemmtilega áhugamáli á samfélagsmiðlum.

Góð leið til að róa taugarnar

Í viðtali við fréttamiðilinn Today viðurkenndi Daley að hann prjóni til að losa sig við stress og að prjónaskapurinn hafi margoft bjargað honum frá því að ofhugsa á sjálfan keppnisdaginn. 

Dýfingamaðurinn er sannfærður um að prjónamennskan hafi verið ofurkraftur hans á Ólympíuleikunum í Tókýó árið 2021 og hjálpað honum að landa gullverðlaunum. 

„Við máttum ekki fara út. Við máttum ekki gera neitt, máttum varla spjalla og það var svo mikill tíma til að ofhugsa hlutina. Það varð til þess að ég tók upp prjónana. Þetta varð meðalið mitt og ró,“ sagði Daley.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu til þess að láta til þín taka í dag og þarft því að að vera mjög vel undirbúinn þegar þú flytur mál þitt.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Hugrún Björnsdóttir
5
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu til þess að láta til þín taka í dag og þarft því að að vera mjög vel undirbúinn þegar þú flytur mál þitt.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Hugrún Björnsdóttir
5
Eva Björg Ægisdóttir