Miðöldrun vitjar Seifs

​Jeff Goldblum er með okkar svölustu mönnum.
​Jeff Goldblum er með okkar svölustu mönnum. AFP/Angela Weiss

Hvað ef Seifur, höfuðguð grískrar goðafræði, yrði fluttur af Ólympusfjalli yfir í samtímann og hversdagsleikann vestur í henni Ammríku? Við því fæst svar í sjónvarpsmyndaflokknum KAOS sem hefja mun göngu sína á streymisveitunni Netflix undir lok mánaðarins. 

Höfundurinn, Charlie Covell (sem einnig gerði End of the F***ing World fyrir Netflix), leggur út af spurningunni: „Hvað ef konungur guðanna yrði fyrir barðinu á grimmri miðöldrun?“ Seifur óttast sumsé að hann sé að glata mætti sínum og ákveður að reyna sig við dauðlega menn sem honum finnst ógna sér.

​Janet McTeer fer með hlutverk Heru, eiginkonu Seifs, sem jafnframt …
​Janet McTeer fer með hlutverk Heru, eiginkonu Seifs, sem jafnframt er verndari giftra kvenna. ​AFP/Justin Tallis

Í jarðlífinu er hann réttnefndur spaði, auðmaður með gullúr á úlnliðnum sem býr í voldugri villu en er með ofboðslega vondan fatasmekk. Allt í kring leikur óstarfhæf fjölskyldan lausum hala. 

Sjálfur Jeff Goldblum fer með hlutverk Seifs.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur einbeitt þér um of að andlegri líðan þinni og um leið vanrækt líkamann. Gerðu eitthvað í því. Sígandi lukka er best.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Camilla Läckberg
5
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur einbeitt þér um of að andlegri líðan þinni og um leið vanrækt líkamann. Gerðu eitthvað í því. Sígandi lukka er best.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Camilla Läckberg
5
Eva Björg Ægisdóttir