Endurvekja einn langlífasta skemmtistað borgarinnar

Skemmtistaðurinn 22 var stofnaður árið 1988 og rekinn til ársins …
Skemmtistaðurinn 22 var stofnaður árið 1988 og rekinn til ársins 2006. Ljósmynd/22 Reykjavík

Einn langlífasti skemmtistaðurinn í Reykjavík, 22, verður opnaður á ný við Laugaveg 22 þar sem hann verður samrekinn hinsegin skemmtistaðnum Kiki.

Frá þessu er greint í tilkynningu skemmtistaðarins á Facebook.

Skemmtistaðurinn 22 var stofnaður árið 1988 og rekinn til ársins 2006. Gegndi hann hlutverki samkomustaðar samkynhneigðra og hinsegin fólks í miðborginni.

Í tilkynningunni segir að saga hinsegin fólks í húsinu eigi sér þó enn lengri formála „og tengist hornið hinsegin samfélaginu sterkum böndum“.

Sögunni gert hátt undir höfði

Eigendaskipti urðu á Kiki í júlí en þá tók Magnea Fredriksen við sem rekstrarstjóri og Margrét Erla Maack sem skemmtanastjóri. Rekstur 22 mun vera í höndum þeirra tveggja.

„[N]ú hefur einn langlífasti staðurinn á þessu horni, hinn margrómaði skemmtistaður KIKI Queer Club stækkað við sig, og tekið yfir neðri hæð hússins undir nýjum merkjum 22,“ segir í tilkynningunni.

„Verður sögu hússins og því lífi sem hann hefur hýst gert hátt til höfuðs, ásamt því að tvinna saman viðburðarhald milli hæðanna og styrkja félagslíf hinsegin samfélagsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur einbeitt þér um of að andlegri líðan þinni og um leið vanrækt líkamann. Gerðu eitthvað í því. Sígandi lukka er best.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Camilla Läckberg
5
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur einbeitt þér um of að andlegri líðan þinni og um leið vanrækt líkamann. Gerðu eitthvað í því. Sígandi lukka er best.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Camilla Läckberg
5
Eva Björg Ægisdóttir