Trans dóttir auðjöfursins Elon Musk, Vivian Jenna Wilson, opnaði sig um skrautlega fortíð föður síns í færslu á samfélagsmiðlasíðunni Threads á mánudag.
Samband feðginanna hefur verið ansi stormasamt í gegnum árin þar sem Musk neitar að viðurkenna tilvist dóttur sinnar. Hann sagði í nýlegu viðtali að „woke mind virus“ hafi drepið barnið sitt.
Í hefndarskyni fyrir orð föður síns ákvað Wilson að gefa netverjum innsýn inn í líf Musk og sagði meðal annars frá ótal framhjáhöldum föður síns og lausaleiksbörnum.
Wilson, sem breytti nafni sínu og kyni í júní 2022, kallaði föður sinn meðal annars raðframhjáhaldara, lygara, hræðilegan föður og mann sem byggi í landi blekkinga.
Musk á 12 börn með þremur konum. Hann eignaðist sex börn, þar á meðal Wilson, með fyrstu eiginkonu sinni, rithöfundinum Jennifer Justin Musk.