Kvikmyndin Miller's Girl var frumsýnd í byrjun árs og hefur verið harðlega gagnrýnd vegna ástarsenu á milli aðalleikara myndarinnar, Jennu Ortega og Martins Freeman. 30 ára aldursmunur er á þeim og þykir mörgum söguþráður myndarinnar og þá sérstaklega ástarsena karakteranna afar óviðeigandi.
Ortega, best þekkt fyrir leik sinn í þáttaröðinni Wednesday, rauf þögnina og ræddi við blaðamann Vanity Fair um kvikmyndina sem er erótísk spennumynd og fjallar um náið samband kennara og nemanda.
„Þetta er óþægileg kvikmynd. Hún á að vera það,“ sagði Ortega, 21 árs. „Listin er ekki alltaf falleg og uppfull af gleði og hamingju,“ bætti leikkonan við.
Kristina Arjona, sem sinnti hlutverki nándarþjálfara á bak við tjöldin, ræddi við DailyMail skömmu eftir frumsýningu og staðfesti að sérstakir verkferlar hefðu verið til staðar á tökusetti til að koma í veg fyrir vanlíðan og óþægindi.
„Ortega var ákveðin og mjög viss um hvað hún væri að gera,“ sagði Arjona. „Það var vel passað upp á að virða mörk leikaranna.“
Freeman, 52 ára, opnaði sig einnig um gagnrýni kvikmyndarinnar og sagði að óþægilegt samband karakteranna væri tilgangur kvikmyndarinnar.