Hefur brotið tíu bein á ferlinum

Leikkonan Halle Berry fór með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Catwoman árið …
Leikkonan Halle Berry fór með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Catwoman árið 2004. Samsett mynd

Leikkonan Halle Berry hefur opnað sig um þau fjölmörgu beinbrot og áverka sem hún hefur hlotið í gegnum glæstan leikaraferil sinn.

Áhætta hefur sjaldan fælt Berry frá stórum hlutverkum en hugrekki hennar gerði hana meðal annars að fyrstu svörtu leikkonunni til að vinna til Óskarsverðlauna fyrir aðalhlutverk sitt í kvikmyndinni Monster Ball árið 2001. 

Áhættusöm hlutverk ganga þó ekki alltaf áfallalaust fyrir sig. Leikkonan opinberaði nýverið langan og sársaukafullan lista af slysum sem hún hefur lent í við tökur.

„Ég hef rotast þrisvar sinnum í kvikmyndasetti,“ segir leikkonan í kynningarmyndbandi fyrir Netflix-myndina The Union.

Berry hélt áfram að telja upp slysin og hún sagði að hún hefði brotið fjölmörg bein. „Ég hef handleggsbrotnað, brotið rifbein tvisvar – tvö rifbein í fyrra skiptið og þrjú í það seinna. Síðan var það rófubeinið, tvær tær og einn fingur,“ segir hún á meðan hún lyftir upp löngutöng.

Mótleikari hennar Mark Wahlberg, sem sat við hlið Berry í myndbandinu, var furðulostinn og sagði að hann hefði verið heppinn að hafa aldrei brotið bein við tökur en öxlin hans hafi einu sinni farið úr lið og að egóið hans hafi einstaka sinnum særst. 

Atriði sem gerast neðansjáfar krefjandi

Berry hefur verið í mörgum krefjandi aðstæðum við tökur í gegnum tíðina en í kvikmyndinni Dark Tide, sem kom út árið 2012, varð leikkonan að halda lengi inni í sér andanum í atriðum sem gerðust neðansjáfar. 

„Ég lék kafara og ég þurfti að vera í kafi í næstum tvær og hálfa mínútu. Það leið eins og heil eilífð og mér fannst eins og dauðinn væri yfirvofandi.“

Page six

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er kominn tími til að bregða á leik og þú ert til í slaginn. Augu þín opnast fyrir möguleikum sem þú hefur varðandi nám.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Sigrún Elíasdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Camilla Läckberg
4
Unnur Lilja Aradóttir
5
Colleen Hoover
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er kominn tími til að bregða á leik og þú ert til í slaginn. Augu þín opnast fyrir möguleikum sem þú hefur varðandi nám.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Sigrún Elíasdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Camilla Läckberg
4
Unnur Lilja Aradóttir
5
Colleen Hoover