Love Island-stjörnuparið Tommy Fury og Molly-Mae Hague eru hætt saman. Þetta staðfestir parið á Instagram-reikningum sínum í dag. Þau segjast bæði vera miður sín.
Parið hefur nú bundið enda á fimm ára ástarsamband sitt sen saman eiga þau eins árs gömlu dótturina Bambi. Aðeins nokkrum vikum eftir fæðingu dótturinnar bað Fury Molly-Mae um að kvænast sér á afar rómantískan máta.
Í Instagram-færslu segir Hague að hún sé algjörlega í uppnámi yfir hvernig samband þeirra endaði en að hún segist alltaf muni vera þakklát fyrir allar góðu minningarnar og að dóttir þeirra Bambi sé í forgangi.
Fury tekur í sama streng og biður fylgjendur sína um að virða einkalíf fjölskyldunnar í gegnum þessa erfiðu tíma.
Sögusagnir um sambandsslit Fury og Hague fóru á kreik í júní síðastliðinn en sambandið hefur verið áberandi í fjölmiðlum allt frá því Fury sást dansa við aðra konu á skemmtistað í Dúbaí í desember í fyrra. Síðan þá hefur Fury sést oftar en einu sinni án trúlofunarhringsins.
Parið fundu hvort annað í sjónvarpsþáttunum Love Island árið 2019 en nú er ástarævintýrið á enda.