„Ég bókstaflega fyrirleit sjálfan mig“

Stjörnuparið Rose Leslie og Kit Harington.
Stjörnuparið Rose Leslie og Kit Harington. AFP

Game of Thrones-stjarnan Kit Harington segist loksins hafa fundið fyrir stolti eftir að hann varð edrú. Leikarinn glímdi við áfengisvanda, kvíða og önnur andleg veikindi á meðan á tökum þáttaraðanna vinsælu stóð. 

Í nýlegu viðtali opnaði Harington sig um bataferlið og nefnir þar sérstaklega að það að tala um edrúmennskuna hjálpi honum mikið og komi í veg fyrir að hann falli aftur. 

„Ég var heppinn að ég varð edrú áður en ég átti börn,“ segir Harington. „Á tímapunkti leið mér eins og það væri líkamlega og tilfinningalega ómögulegt fyrir mig að drekka ekki aftur,“ bætir hann við. 

Leikarinn hefur áður talað opinskátt um baráttu sína við þunglyndi, en hann segist nú hafa fundið stoltið á ný og sé gríðarlega ánægður með að hafa losað sig við áfengisdrykkjuna. 

Stoltur af árangrinum

„Ég get raunverulega verið stoltur af þessum árangri,“ útskýrir Harington. „Áður en ég varð edrú horfði ég á sjálfan mig í spegli og kallaði mig aumingja. Ég hataði sjálfan mig, ég bókstaflega fyrirleit sjálfan mig og var ekki stoltur af neinu sem ég gerði,“ bætir hann við. 

Harington segir að sagan sé hins vegar allt önnur í dag. Nú er hann stoltur af öllu sem hann tekur sér fyrir hendur.

„Núna, á hverju einasta kvikmyndasetti og í hvaða verkefni sem er, er ég stoltur af minni vinnu því ég veit að ég gaf mig allan fram. Áður var þessi þungi skuggi yfir mér sem hélt mér niðri,“ segir Harington.

Leikarinn greinir frá því að hann sé nú í góðri stöðu andlega og að hann trúi því að hann geti sigrast á hvaða bakslagi sem er, svo lengi sem hann talar opinskátt um styrkleika og veikleika sína.

People

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú nýtur þess að versla og eyða peningum í dag. Ef þú grefur djúpt finnur þú svör. Næstu vikur henta því vel til að gera upp gömul deilumál.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Sigrún Elíasdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Camilla Läckberg
4
Unnur Lilja Aradóttir
5
Colleen Hoover
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú nýtur þess að versla og eyða peningum í dag. Ef þú grefur djúpt finnur þú svör. Næstu vikur henta því vel til að gera upp gömul deilumál.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Sigrún Elíasdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Camilla Läckberg
4
Unnur Lilja Aradóttir
5
Colleen Hoover