Fjórir félagar í genginu Florencia 13 hafa verið handteknir og ákærðir í tengslum við morðið á leikaranum Johnny Wactor.
Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs eru hinir handteknu á aldursbilinu 18 til 22 ára.
Wactor, best þekktur fyrir leik sinn í bandarísku sápuóperunni General Hospital, var skotinn til bana í Los Angeles síðla maímánaðar þegar hann og samstarfskona hans, Anita Joy, urðu vitni að því þegar þrír grímuklæddir menn reyndu að stela hvarfakút af bíl leikarans.
Leikarinn, sem var 37 ára, var fluttur með hraði á sjúkrahús en úrskurðaður látinn við komu á bráðamóttökuna.