Handtaka Maríusar Borg Høiby hefur valdið miklu fjaðrafoki í Noregi og víðar en Maríus er sonur Mette-Maritar, krónprinsessu Noregs. Maríus viðurkenndi brot sín í vikunni og sagðist hafa átt í fíknivanda. Í gegnum árin hefur stjúpsonur Hákons krónprins Noregs valdið vandræðum.
Maríus sem er 27 ára sendi frá sér tilkynningu í vikunni sem birtist á vef NRK. Þar segir hann að hann að hann hafi meðal annars beitt líkamlegu ofbeldi eftir að hafa neytt áfengis og kókaíns. Sagði hann í tilkynningu hafa glímt við geðræn vandamál í fíknivandamál í nokkur ár.
Á vef Daily Mail er talað um Maríus sem svarta sauðinn í norsku konungsfjölskyldunni. Mette-Marit, eiginkona Hákons krónprins átti Maríus áður en hún kynntist Hákoni. Er rifjað upp atvik frá því í fyrra þegar kærasta Maríusar sást með hvítt duft í poka, talið var að hvíta duftið væri kókaín.
En ólætin og fjölmiðlaumfjöllunin byrjaði enn fyrr. Þegar Maríus var einungis 15 ára notaði hann samfélagsmiðla óvarlega. Hann var með samfélagsmiðil opinn og deildi því hvar fjölskyldan var staðsett. Fjölmiðlar vildu meina að þetta setti konungsfjölskylduna í hættu. Mette-Marit og Hákon reyndu að verja notkun Maríusar þegar hegðun hans á netinu komst í fréttir.
Samband Mette-Marit og Hákons krónprins var mjög umdeilt á sínum tíma. Mette-Marit var einstæð móðir, sögð stunda næturlífið grimmt og viðurkenndi að hafa umgengist fíkniefnaneytendur og gaf í skyn að hafa sjálf neytt fíkniefna. Þá var barnsfaðir hennar ekki af betri gerðinni og hlaut á sínum tíma dóm fyrir fíkniefnabrot. Þá þótti það síðar setja blett á konungsfjölskylduna þegar bróðir Mette-Marit var handtekinn fyrir ofbeldi gagnvart sambýliskonu sinni eftir að hún varð krónprinsessa.