Trúlofuð í fjórða sinn

Leikaraparið Tom Pelphrey og Kaley Cuoco tilkynntu um trúlofun sína …
Leikaraparið Tom Pelphrey og Kaley Cuoco tilkynntu um trúlofun sína á samfélagsmiðlum. Skjáskot/Instagram

Leikkonan Kaley Cuoco er trúlofuð kærasta sínum til tveggja ára, leikaranum Tom Pelphrey.

Cuoco, best þekkt fyrir leik sinn í bandarísku gamanþáttaröðinni The Big Bang Theory, greindi frá trúlofuninni á Instagram Story á miðvikudag. Leikaraparið á eina dóttur, Mathildu, sem kom í heiminn þann 30. mars á síðasta ári.

Þetta er í fjórða sinn sem Cuoco trúlofar sig en hún hefur tvívegis gengið í hjónaband. Hún var gift tennisleikaranum Ryan Sweeting á árunum 2013 til 2016 og gekk að eiga hestamanninn Karl Cook tveimur árum síðar. Þau skildu árið 2022, aðeins örfáum mánuðum áður en Cuoco byrjaði með Pelphrey.

Cuoco sagði í viðtali við tískutímaritið Glamour árið 2022 að hún myndi aldrei ganga í hjónaband aftur en greinilegt er að henni hafi snúist hugur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa alla þræði í hendi þér áður en þú ræðst í þær framkvæmdir sem þig dreymir um. Láttu það bara eftir þér að brosa út í bæði, þú hefur ástæðu til þess.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa alla þræði í hendi þér áður en þú ræðst í þær framkvæmdir sem þig dreymir um. Láttu það bara eftir þér að brosa út í bæði, þú hefur ástæðu til þess.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg