Kesha þreytt á því að ganga í fötum

Tónlistarkonan Kesha Rose Sebert.
Tónlistarkonan Kesha Rose Sebert. Samsett mynd

Bandaríska tónlistarkonan Kesha, best þekkt fyrir lögin Tik Tok og Timber, segist vera búin að fá sig fullsadda af fötum. Hún greindi frá þessu í færslu á Instagram-síðu sinni á laugardag og birti mynd af sér kviknakinni á eldhússtól að borða salat. 

Færsla Keshu vakti mikla athygli og fögnuðu fylgjendur hennar, sem telja ríflega þrjár milljónir, þessari yfirlýsingu.

„En...Ég er þreytt á því að vera í fötum,“ skrifaði tónlistarkonan við myndina sem tæplega 114.000 manns hafa líkað við. Margir vöktu athygli á unglegu útliti Keshu, en hún varð 37 ára gömul fyrr á árinu.

Kesha er vel þekkt fyrir að birta djarfar færslur á samfélagsmiðlasíðum sínum. Hún fagnaði meðal annars 15 ára útgáfuafmæli lagsins Tik Tok með því að bursta tennurnar með Jack Daniels's-viskíi fyrr á árinu. 

Kesha greindi einnig frá því að lagið minni hana óstjórnlega mikið á ungu fjörugu stúlkuna sem hún var á þeim tíma. 

View this post on Instagram

A post shared by Kesha (@kesha)

People

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugmyndirnar þyrlast í kringum þig og það er ósköp gaman. Þú hefur aldrei fengið neitt á eitthvað á silfurfati, það gerir þig bara sterkari.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Colleen Hoover
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Sigrún Elíasdóttir
5
Camilla Läckberg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugmyndirnar þyrlast í kringum þig og það er ósköp gaman. Þú hefur aldrei fengið neitt á eitthvað á silfurfati, það gerir þig bara sterkari.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Colleen Hoover
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Sigrún Elíasdóttir
5
Camilla Läckberg