Stökk í sjóinn á afmælisdaginn

De Niro átti góðan afmælisdag.
De Niro átti góðan afmælisdag. Samsett mynd

Stórleikarinn Robert De Niro fagnaði 81 árs afmæli sínu með stæl um helgina. De Niro fagnaði enn einum hring í kringum sólina með því að stökkva í sjóinn. 

Dóttir leikarans, Drena De Niro, náði atvikinu á upptöku og deildi því á samfélagsmiðlasíðunni Instagram. Af myndskeiðinu að dæma er aldurinn ekki farinn að segja til sín en leikarinn virðist vera í hörkuformi.

De Niro er sjö barna faðir. Hann eignaðist sjöunda barn sitt, stúlku sem hlaut nafnið Gia Virgina, í apríl á síðasta ári. Leikarinn viðurkenndi í viðtali við breska fjölmiðilinn The Guardian að barnauppeldið væri erfiðara á hans aldri en hann sagði stúlkuna halda sér ungum. 

View this post on Instagram

A post shared by Drena (@drenadeniro)

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu ekki útlitið blekkja þig því að enn sannast hið fornkveðna að oft er flagð undir fögru skinni. Það er einhver uppreisn í þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Colleen Hoover
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Sigrún Elíasdóttir
5
Camilla Läckberg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu ekki útlitið blekkja þig því að enn sannast hið fornkveðna að oft er flagð undir fögru skinni. Það er einhver uppreisn í þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Colleen Hoover
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Sigrún Elíasdóttir
5
Camilla Läckberg