Alicia Silverstone er enn á lífi

Alicia Silverstone er enn við hestaheilsu.
Alicia Silverstone er enn við hestaheilsu. AFP/Getty Images/Monica Schipper

Bandaríska leikkonan Alicia Silverstone sá sig tilneydda í gærkvöldi til þess að lýsa því yfir að hún væri enn á lífi. Nokkur umræða hafði skapast í netheimum þar sem óttast var um heilsufar hennar eftir að hún birti myndband af sér á TikTok, þar sem hún beit í ókunnugt ber sem hún fann á götunni.

„Ég fann svolítið sem ég fatta ekki hvað er, og ég þarf ykkar hjálp“ sagði Silverstone í myndbandinu, en hún var þá stödd í Lundúnum. Sýndi hún þar ber, sem hún sá liggjandi á götunni, og sagði Silverstone að hún og samferðamenn hennar hefðu spurt sig hvort um væri að ræða einhvers konar tómat. Tók hún svo bita af berinu.

Í myndbandi Silverstone mátti svo sjá runnann sem berið hafði fallið af, og sýndist grasafróðugum aðdáendum leikkonunnar sem að þar væri á ferðinni Jerúsalemskirsuber (Solanum pseudocapsicum), en það er skrautrunni af náttskuggaætt og eru berin eitruð mönnum og flestum dýrum. 

@aliciasilverstone

What the heck is this!? I’m in England and can’t figure it out. 🤔

♬ original sound - Alicia Silverstone

Framferði leikkonunnar þótti ekki síst áhyggjuefni, þar sem hún tjáði sig ekkert frekar á samfélagsmiðlum þann daginn, og voru því uppi vangaveltur um að berið hefði mögulega orðið henni að aldurtila.

Silverstone ákvað svo að slá á áhyggjurnar með því að birta færslu á Instagram, þar sem hún lýsti því einfaldlega yfir að hún væri á lífi og við góða heilsu. 

„Engar áhyggjur, ég kyngdi ekki“, sagði leikkonan, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt í unglingamyndinni Clueless, sem gladdi marga á 10. áratugnum. 



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sjaldnast vitum við alla söguna um annað fólk og því eigum við að fara okkur hægt í að dæma. Þú varpar öndinni léttar þegar þú færð fréttir af ættingja.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Colleen Hoover
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Ragnheiður Gestsdóttir
5
Sigrún Elíasdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sjaldnast vitum við alla söguna um annað fólk og því eigum við að fara okkur hægt í að dæma. Þú varpar öndinni léttar þegar þú færð fréttir af ættingja.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Colleen Hoover
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Ragnheiður Gestsdóttir
5
Sigrún Elíasdóttir