Útskriftarnemi skráði nafn sitt á spjöld sögubókanna

de Santiago stillti sér stolt upp með útskriftarskírteinið.
de Santiago stillti sér stolt upp með útskriftarskírteinið. Samsett mynd

Ana Victoria Espino de Santiago skráði nafn sitt á spjöld sögubókanna nýverið þegar hún útskrifaðist með lögfræðipróf frá Universidad Autónoma de Zacatecas í Mexíkó. Hún er fyrsta manneskjan með Downs-heilkenni í heiminum til að útskrifast sem lögfræðingur.

Ljósmynd af de Santiago með útskriftarhúfu á höfði og skírteini í hönd hefur farið eins og eldur í sinu um netheima og hefur fjöldinn allur af fólki óskað útskriftarnemanum hjartanlega til hamingju með áfangann.

Þessi mikilvægi áfangi de Santiago hefur veitt miklum fjölda barna og ungmenna innblástur og hvatningu. Sömuleiðis er hann sagður geta endurskilgreint hvað sé mögulegt fyrir einstaklinga með fötlun þegar kemur að vali á námi, starfi eða starfsferli.

de Santiago, sem er 25 ára, vill að reynsla sín nýtist öðrum og stefnir hún á að nota lögfræðigráðuna til að berjast fyrir réttindum fatlaðs fólks.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ástin er ekki flókin þegar báðir aðilar svífa um á bleiku skýi. Hættu að reyna að vera allt í öllu fyrir alla.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Colleen Hoover
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Ragnheiður Gestsdóttir
5
Sigrún Elíasdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ástin er ekki flókin þegar báðir aðilar svífa um á bleiku skýi. Hættu að reyna að vera allt í öllu fyrir alla.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Colleen Hoover
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Ragnheiður Gestsdóttir
5
Sigrún Elíasdóttir