Verður Travis Kelce næsta stórstjarnan í Hollywood?

Hæfileikabúntið Travis Kelce.
Hæfileikabúntið Travis Kelce. AFP/David Eulitt

Travis Kelce, NFL-leikmaður og kærasti tónlistarkonunnar Taylor Swift, gæti orðið næsta stóra Hollywood-stjarnan en hann er sagður vera í samningsviðræðum um að fara með aðalhlutverk í hasar-grínmyndinni Loose Cannons

Þetta tilkynnti fjölmiðillinn Variety í gær. 

Leikstjórinn Chad Stahelski og framleiðslufyrirtæki hans 87Eleven Entertainment, sem þekktast er fyrir framleiðslu á kvikmyndunum John Wick, Hunger Games og Deadpool 2munu leggja fram krafta sína við gerð kvikmyndarinnar í samstarfi við kvik­mynda­verið Lionsgate. 

Myndin fjallar um tvo óstöðvandi en ólíka lögregluþjóna sem eru paraðir saman til að jafna hvorn annan út.  

Mörg tækifæri fyrir kappann í Hollywood

Líklegt er að tökur eigi ekki eftir að hefjast fyrr en NFL-leikmaðurinn hefur lokið komandi tímabili í ameríska fótboltanum sem hefst eftir tvær vikur. 

Kelce tókst að koma öðrum fætinum inn í Hollywood með vinsældum hlaðvarpsþáttarins New Heights sem hann stjórnar ásamt bróður sínum Jason. Eftir að Kelce og Swift urðu svo par fyrir um ári síðan hafa vinsældir hans aukist til muna. 

NFL-leikmaðurinn mun einnig verða þáttastjórnandi skemmtiþáttanna Are You Smarter Than a Celebrity? sem hefjast í haust. Ljóst er að nóg verður um að snúast hjá Kelce næstu mánuðina en ekkert hlutverk virðist honum ómögulegt.

Us Weekly

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér er nauðsynlegt að halda þig til hlés um sinn til að íhuga þinn gang og endurnýja orkuna. Notaðu lausan tíma til að skipuleggja haustið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Colleen Hoover
4
Ragnheiður Gestsdóttir
5
Sigrún Elíasdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér er nauðsynlegt að halda þig til hlés um sinn til að íhuga þinn gang og endurnýja orkuna. Notaðu lausan tíma til að skipuleggja haustið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Colleen Hoover
4
Ragnheiður Gestsdóttir
5
Sigrún Elíasdóttir