Strákasveitin IceGuys, sem er skipuð þeim Jóni Jónssyni, Friðriki Dór, Rúrik Gíslasyni, Herra Hnetusmjör og Aron Can, sló lokatóninn á Tónaflóði Rásar 2 við Arnahól á Menningarnótt í kvöld.
Fjölmenni var samankomið í miðbænum til að skemmta sér og óhætt er að segja að þeir ísfélagar hafi verið í banastuði þegar þeir léku fyrir gesti og gangandi, þó að það hafi aðeins gustað um í miðborginni.