Carey missti móður sína og systur sama dag

Mariah Carey.
Mariah Carey. AFP/Bridget Bennett

Móðir og systir Mariah Carey létust sama dag um síðustu helgi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá bandarísku söngkonunni.

„Hjarta mitt er brostið eftir að ég missti móður mína um síðustu helgi,“ sagði Carey. „Því miður gerðist það einnig að systir mín lést sama dag.“

Söngkonan sagðist vera þakklát fyrir að hafa varið tíma með móður sinni í vikunni áður en hún lést. Ekkert kom fram um hvernig hún lést.

Patricia, 87 ára, var fyrrverandi óperusöngkona og söngkennari. Hún var af írsk-bandarískum uppruna, að því er BBC greindi frá.

Í endurminningum sínum frá árinu 2020 skrifaði Carey, sem er fimmfaldur Grammy-verðlaunahafi, um flókið samband sitt við móður sína. Það hefði valdið henni „svo miklum sársauka og ringulreið“.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Með réttu lagi ættir þú að koma málum þínum heilum í höfn. Ekki gefast upp á því að ná markmiðum þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Colleen Hoover
4
Snæbjörn Arngrímsson
5
Ragnheiður Gestsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Með réttu lagi ættir þú að koma málum þínum heilum í höfn. Ekki gefast upp á því að ná markmiðum þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Colleen Hoover
4
Snæbjörn Arngrímsson
5
Ragnheiður Gestsdóttir