Guðs lifandi fegin að vera laus við Affleck

Hollywood-stjörnurnar giftu sig við hátíðlega athöfn í júlí 2022.
Hollywood-stjörnurnar giftu sig við hátíðlega athöfn í júlí 2022. AFP

Söng- og leikkonan Jennifer Lopez er sögð guðs lifandi fegin að vera laus við eiginmann sinn, leikstjórann og leikarann Ben Affleck, í kjölfar stormasams hjónabandslífs þeirra síðustu tvö árin.

Lopez sótti formlega um skilnað frá Affleck í síðustu viku og var það, að sögn heimildarmanns, það síðasta sem hún vildi gera. Leikkonan var víst tilbúin að gera hvað sem er til að lappa upp á hjónaband hennar og Affleck, en leikstjórinn var ekki á sama máli. 

„Það hefur verið mjög erfitt fyrir hana að horfa á eftir Affleck. Hann ákvað að halda áfram með líf sitt og skilja hana eftir,” sagði heimildarmaður við tímaritið People á mánudag.

„Hún vildi alls ekki skilja. Hún vildi leysa átök og rækta sambandið. Þau elska hvort annað. Lopez er ekki týpan til að gefast upp. Það hefur verið mjög erfitt fyrir hana að sitja og bíða.”

Lopez og Aff­leck eiga langa sögu sund­ur og sam­an. Þau voru áður trú­lofuð og ætluðu að gifta sig í sept­em­ber 2003 en hættu svo sam­an í byrj­un árs 2004. Þau voru svo vin­ir og byrjuðu aft­ur sam­an 17 árum síðar. Hollywood-stjörnurnar giftu sig við hátíðlega athöfn í júlí 2022.

Kominn með nýja

Aff­leck virðist þegar vera kom­inn yfir fyrr­ver­andi eig­in­konu sína, en síðustu vik­ur hef­ur hann sést ásamt dótt­ur banda­ríska stjórn­mála­manns­ins Robert F. Kenn­e­dy, leik­kon­unni Kick Kenn­e­dy.

Eðli sam­bands þeirra er óljóst en parið sást meðal ann­ars á ein­um heit­asta skemmti­stað ríka og fræga fólks­ins, The Polo Lounge, nú á dögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu vini þína ekki eggja þig til eyðslusemi. Hvort sem þú verður ástfanginn eða leikur þér að saklausu daðri verður líf þitt óvenju spennandi næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Colleen Hoover
4
Snæbjörn Arngrímsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu vini þína ekki eggja þig til eyðslusemi. Hvort sem þú verður ástfanginn eða leikur þér að saklausu daðri verður líf þitt óvenju spennandi næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Colleen Hoover
4
Snæbjörn Arngrímsson