Neyðist til að selja bílinn

Armie Hammer.
Armie Hammer. AFP

Bandaríski leikarinn Armie Hammer hefur ekki átt sjö dagana sæla síðustu ár. Leikarinn hefur lítið sést á skjánum eftir að ásakanir um framhjáhald, nauðgun og mannát komust í hámæli árið 2021.

Síðasta hlutverk Hammer var í kvikmyndinni Death on the Nile sem var frumsýnd snemma árs 2022. Leikarinn er ekki með önnur kvikmyndaverkefni í bígerð samkvæmt IMDb og glímir við mikla fjárhagslega örðugleika.

Á þriðjudag birti leikarinn myndskeið á Instagram-síðu sinni þar sem hann auglýsir pallbíl til sölu. Bíllinn, sem er af gerðinni GMC Sierra 1500 Denali, hefur verið í eigu leikarans frá árinu 2017.

Í myndskeiðinu segist Hammer neyðast til að selja bílinn sökum þess að geta ekki borgað fyrir eldsneyti á bílinn, en það kostar hann um og yfir 500 bandaríkjadali að fylla á tankinn í stjörnuborginni Los Angeles.

Hammer er nú mættur aftur til Los Angeles eftir nokkurra ára dvöl á Cayman-eyjum, í þeirri von um að blása lífi í leikferil sinn. Skömmu eftir að ásakanir um kynferðisbrot komu upp á yfirborðið flúði leikarinn til Cayman-eyja og fór að starfa á hót­eli við að ráðleggja ferðamönn­um sem heim­sækja eyj­una.

Góðvinur Hammer, leikarinn Robert Downey Jr., er sagður hafa stutt leik­ar­ann fjár­hags­lega síðustu misseri.

View this post on Instagram

A post shared by @armiehammer

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft ekki að vaða yfir allt og alla til að koma málstað þínum á framfæri. Gefðu þér tíma til að vera með vinum þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Ragnheiður Jónsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Snæbjörn Arngrímsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft ekki að vaða yfir allt og alla til að koma málstað þínum á framfæri. Gefðu þér tíma til að vera með vinum þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Ragnheiður Jónsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Snæbjörn Arngrímsson