Eva Ruza flytur pistla um stjörnurnar á hverjum degi á sinn einstaka hátt á K100.
Mariah Carey er í fjárhagsvandræðum ef eitthvað er að marka fréttamiðla.
Hún hefur víst verið að taka lán í gegnum árin út á þakíbúð sem hún á í New York til að eiga fyrir prinsessulífinu sem hún lifir.
Mariah eyðir mjög miklum peningum í útlitið í hverjum mánuði, fatnað, gjafir, dekur fyrir hundana sína og fleira. Talið er að það sé hátt í ein milljón dollara sem fer í eyðslu hjá skvís á mánuði. Sem er rosaleg upphæð.
Þrátt fyrir að Mariah sé metin á 350 milljón dollara þá er hún víst farin að finna fyrir því að hafa í gegnum árin tekið hátt í 18,6 milljóna dollara lán á þessa blessuðu íbúð.
Mariah þarf víst ekki að hafa áhyggjur þar sem jólavertíðin nálgast og lagið hennar „All I want for Christmas“ fer í spilun um allan heim sem verður þess valdandi að veskið hennar Mariuh okkar troðfyllist af seðlum.
Hún þarf bara að hætta að taka lán til að lifa.
Fyrrverandi eiginmaður hennar og barnsfaðir, Nick Cannon, sagði í viðtali fyrir tveimur árum síðan að það kostaði 150-200.000 dollara fyrir hana bara að labba út úr húsi.
Ég held að Mariah þurfi einhvern í kringum sig til að sjá um að skammta til hennar peningum.