Frussaði vodka yfir tónleikagesti á fyrsta bekk

Jólatónleikar Siggu Beinteins hafa löngum fest sig í sessi hjá íslensku þjóðinni og eru orðnir órjúfanlegur hluti jólanna hjá mörgum. Í ár eru liðin 15 ár frá því Sigga hélt sínu fyrstu jólatónleika sem síðan þá hafa stækkað og orðið umfangsmeiri með hverju árinu sem liðið hefur.

Að sögn Siggu stendur undirbúningur jólatónleikanna nánast yfir allt árið en hefst þó ekki fyrir alvöru fyrr en um mitt hvert ár. Hún segist bæði heppin og þakklát fyrir samstarfsfólk sitt sem tali eitt og sama tungumálið þegar búa á til stórkostlega jóla og tónleika upplifun fyrir landsmenn. Enda segist hún kjósa að vinna með sama góða fólkinu sem tekst að toppa sig ár eftir ár og leyfir sér að hafa gleði og grín í fyrirrúmi til að þétta raðirnar enn frekar.

Fylltu glasið af vodka en ekki vatni

„Það er svona alls konar grín í gangi. Ég er alltaf með vatn á sviðinu fyrir mig ef ég er að syngja nokkur lög í röð því þá er svo gott að vera með vatn fyrir hálsinn, mikið atriði að halda raka á öllu kerfinu. En þetta árið þá er ég að segja eitthvað og tek vatnsglasið og byrja að þamba en ég bara frussa öllu yfir fyrsta bekk af því að það var búið að fylla glasið mitt af vodka og ég náttúrulega gat ekkert þambað þetta,“ segir Sigga og hlær yfir hrekkjabragði hljómsveitarmeðlima sinna og samstarfsfólks.

„Aumingja fólkið sem sat þarna man örugglega enn eftir þessu. En að láta sér detta þetta í hug að láta vodka í glasið hjá mér,“ segir Sigga sem leggur mikið upp úr því að eiga í skemmtilegum og góðum samskiptum við fólkið sitt og tónleikagesti.

Létt og skemmtileg stemning

„Ég vil hafa þetta létt og ég ætla að ýkja það enn meira í ár,“ segir hún en til stendur að grínistarnir Helga Braga Jónsdóttir og Bjarni töframaður taki þátt í jólatónleikunum í ár.

„Þau eru svo fyndin. Helga Braga er náttúrulega bara grínleikkona fyrir allan peninginn og hugmyndirnar sem hún hefur komið með nú þegar eru geggjaðar en hann er líka svona ógeðslega fyndinn.“

Í tilefni af 15 ára jólatónleika vegferðinni segist Sigga hafa fundið þörf fyrir að færa tónleikana í ár upp á hærri stall.

„Mig langaði bara til að létta þetta enn meira í ár. Það eru komin 15 ár þannig það verður meira grín og svo verð ég með mikið af söngvurum líka því mig langaði bara til að fá enn meiri gleði og mikið grín. Þetta snýst um það að hafa gaman.“

Smelltu á spilarann hér að neðan til að horfa eða hlusta á viðtalið við Siggu Beinteins í heild sinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér kann að sýnast langt í milli þess sem þú hefur og þess sem þig dreymir um. Að binda trúss sitt við ranga fólkið getur leitt til þess að framfarir stöðvist.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér kann að sýnast langt í milli þess sem þú hefur og þess sem þig dreymir um. Að binda trúss sitt við ranga fólkið getur leitt til þess að framfarir stöðvist.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan