Einkaþjálfarinn og áhrifavaldurinn, Guðmundur Emil Jóhannsson, Gummi Emil eins og hann er kallaður, var fjarlægður með aðstoð lögreglu í gær þar sem hann gekk nakinn eftir Suðurlandsvegi.
Gummi Emil segir frá því á Instagram-reikningi sínum að hann hafi verið á sveppum þegar hann var handtekinn.
„Ég undirritaður sé mér þess kost vænstan að upplýsa almenning um gjörning þann sem ég varð fyrir í gær sunnudaginn 22. september. Þannig var mál með vexti að ég hafði ákveðið að taka þátt í sveppatúr ásamt tveimur öðrum einstaklingum. Þetta átti að standa frá u.þ.b. klukkan 08.00 um morguninn til klukkan 14.00. Þetta gera menn og konur til að leita inn á við og hefur oft og tíðum skilað góðum árangri. Það er mjög nauðsynlegt að viðkomandi sem tekst á hendur þessa ferð sé undir eftirliti einhverra sem eru allsgáðir og vel með á nótunum.
Það varð ekki raunin á þessum örlagaríka sunnudegi og það sem gerðist frá því ég tek þessa sveppi og ranka við mér á bráðadeild Landspítalans er mér nánast hulið. Það sem ég veit eftir á er að lögreglan bjargar mér af Suðurlandsvegi þar sem ég geng alsnakinn eftir miðjum veginum. Það er í raun mikil mildi að ekki fór verr fyrir mér og öðrum. Ég er mjög þakklátur löggæslu og starfsfólki bráðamóttöku fyrir hjálp þeirra,“ segir Gummi Emil á Instagram.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gummi Emil kemst í kast við lögin því hann missti bílprófið á dögunum.