Cardi B útskýrir sína hlið á „framhjáhaldinu“

Cardi B svarar fyrir sig eftir að Offset sakar hana …
Cardi B svarar fyrir sig eftir að Offset sakar hana um framhjáhald. Samsett mynd

Rapparinn Cardi B opinberar hvenær þriðja barn þeirra Offset kom undir eftir að hann sakaði hana um framhjáhald í Instagram-færslu.

Í fyrstu taldi Cardi B barnið hafa komið undir á Valentínusardag en í raun var það þegar þau Offset fögnuðu nýja árinu saman, eins og fram kemur á Page Six. Hún segir lækninn sinn hafa staðfest að hún væri gengin 17 vikur þegar hún taldi þær aðeins vera sex eða sjö.

Cardi B hafði í desember á síðasta ári gefið það út að þau Offset væru hætt saman og sagðist ætla að byrja nýtt líf á nýju ári. Sú yfirlýsing stóðst ekki lengi þar sem þau Offset eyddu saman nýárskvöldi og sköpuðu saman nýtt líf.

Fallvölt draumaveröld

Þriðja barn Cardi B og Offset kom í heiminn 7. …
Þriðja barn Cardi B og Offset kom í heiminn 7. september síðastliðinn.

Í júlí sótti hún um skilnað frá Offset og sóttist eftir forsjá yfir börnum þeirra tveimur, dótturinni Kulture 6 ára og syninum Wave 3 ára. 

Daginn eftir greindi hún frá óléttunni. Dóttirin fæddist 7. september síðastliðinn og síðan þá hefur slegið í brýnu milli Cardi B og Offset. Í síðustu viku setti Offset færslu á Instagram þar sem hann sakar spúsu sína um framhjáhald á meðan hún gekk með barn þeirra og svaraði Cardi B grimmt fyrir sig í færslu á X. 

Page six

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Beittu færni þinni til þess að skipuleggja þig. Samstarfsfólk þitt er allt af vilja gert að leggja þér lið ef þú kærir þig um.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Bågstam
2
Lucinda Riley og Harry Whittaker
3
Ragnar Jónasson
4
Elly Griffiths
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Beittu færni þinni til þess að skipuleggja þig. Samstarfsfólk þitt er allt af vilja gert að leggja þér lið ef þú kærir þig um.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Bågstam
2
Lucinda Riley og Harry Whittaker
3
Ragnar Jónasson
4
Elly Griffiths
5
Jojo Moyes