Sigurpar Love Island strax hætt saman

Ástin lifði ekki lengi!
Ástin lifði ekki lengi! Skjáskot/Instagram

Mimii Ngulube og Josh Oyinsan, parið sem bar sigur úr býtum í nýjustu þáttaröð Love Island, eru hætt saman aðeins tveimur mánuðum eftir að þau yfirgáfu ástareyjuna með verðlaunafé sem nemur 50 þúsund sterlingspundum, eða um níu milljónum íslenskra króna. 

Ngulube greindi frá sambandsslitunum á Instagram Story í gærdag. 

„Ég veit að mörg ykkar hafa velt því fyrir ykkur af hverju við Josh höfum ekki verið að koma fram opinberlega saman. Sannleikurinn er sá að við höfum reynt að finna lausn á málum okkar allt frá því við yfirgáfum villuna en því miður virðast hlutirnir ekki ætla að ganga upp,“ skrifaði raunveruleikastjarnan meðal annars. 

Tilkynningin kemur í kjölfar vangaveltna um stöðu parsins. 

Ngulube og Oyinsan eru fyrsta hörundsdökka parið til að sigra raunveruleikaseríuna sem hefur verið í loftinu frá árinu 2015. 

Ástin virðist því miður ekki vera langlíf hjá nýjustu sigurpörum Love Island en í október á síðasta ári tilkynntu þau Jess Harding og Sammy Root að þau væru hætt saman eftir tveggja mánaða samband.

Mimii Ngulube greindi frá sambandsslitunum á Instagram Story.
Mimii Ngulube greindi frá sambandsslitunum á Instagram Story. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að njóta lífsins og allir spyrja þig hvert skal fara, með hverjum og í hverju. Ekki treysta á að hljóta samþykki frá öðrum því þín eigin sjálfsvirðing er það sem mestu máli skiptir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Bågstam
2
Lucinda Riley og Harry Whittaker
3
Ragnar Jónasson
4
Jojo Moyes
5
Elly Griffiths
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að njóta lífsins og allir spyrja þig hvert skal fara, með hverjum og í hverju. Ekki treysta á að hljóta samþykki frá öðrum því þín eigin sjálfsvirðing er það sem mestu máli skiptir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Bågstam
2
Lucinda Riley og Harry Whittaker
3
Ragnar Jónasson
4
Jojo Moyes
5
Elly Griffiths