Bandaríska leikkonan Angelina Jolie virðist vera komin með nýjan mann upp á arminn. Sá heppni heitir Akala og er breskur rappari og aðgerðasinni.
Jolie, 49 ára, og Akala, 40 ára, voru mynduð saman á frumsýningu nýjustu kvikmyndar leikkonunnar, Maria, í New York-borg á dögunum. Jolie fer með hlutverk óperusöngkonunnar Mariu Callas í kvikmyndinni.
Parið er sagt hafa byrjað að stinga nefjum saman á síðasta ári en hefur farið mjög leynt með samband sitt undanfarna mánuði.
Jolie hefur staðið opinberlega í deilum við fyrrverandi eiginmann sinn, leikarann Brad Pitt, síðustu ár, vegna víngerðar þeirra í Frakklandi.
Fyrrverandi hjónin höfðu skipt eigninni jafnt á milli sín þegar sambandið var í blóma en Pitt krefst fulls eignarhalds yfir víngerðinni rétt eins og öðrum eignum og fyrirtækjum sem hjónin áttu saman.
Jolie og Pitt skildu árið 2016 eftir 14 ára samband en þau eiga saman sex börn. Pitt hefur verið í litlum sem engum samskiptum við börnin, sem flestöll eru hætt að kenna sig við leikarann, síðustu ár.