Síðastliðinn laugardag var mætt fjölmennt lið til að planta trjám í Evrópska kvikmyndaskóginum í Heiðmörk. Á staðnum voru Benedikt Erlingsson ásamt fylgdarliði, hin fræga, danska leikkona Tribe Djurholm og fleiri.
Evrópski kvikmyndaskógurinn er á landspildu Evrópsku kvikmyndaakademíunnar (EFA) í Heiðmörk en þar hafa þegar verið gróðursett um 4000 tré.