Hinn 31 árs gamli Liam Payne varði lunganum af ævinni fyrir framan augu almennings m.a. sem meðlimur hljómsveitarinnar One Direction.
Söngvarinn frá Wolverhampton á Englandi er sagður hafa framið sjálfsvíg í Buenos Aires í gærdag.
Áður en frægðarsól hans tók að skína hafði hann farið í áheyrnarprufur í The X Factor sem báru ekki árangur, eins og segir á fréttaveitu AFP.
En þegar hann var aðeins 16 ára gamall fór tónlistarferillinn á flug með hljómsveitinni One Direction, ásamt meðlimum hennar Niall Horan, Harry Styles, Louis Tomlinson og Zayn Malik.
Næstu sex árin á eftir naut hópurinn heimsfrægðar og seldi meira en 70 milljónir eintaka af plötum sínum. Alls urðu tónleikaferðalögin fjögur og þeir unnu til tæplega 200 verðlauna á ferlinum.
Payne sem var af samstarfsfélögum sagður kurteis og auðmjúkur, var einnig talinn drifkrafturinn á bak við One Direction. Hann átti stóran hlut í nokkrum af ástsælustu lögum hljómsveitarinnar.
Árið 2015 yfirgaf Malik hljómsveitina og ári síðar fór hljómsveitin í ótímabundið hlé og hófu þá aðrir meðlimir sólóferil sinn. Sólósmáskífa Payne, Strip That Down, kom út 2017 og náði þriðja sæti breska smáskífulistans.
Á síðasta ári gaf hann út að ný sólóplata væri í vændum eftir að hafa seinkað tónleikaferð sinni vegna heilsufarsvandamála. Síðasta smáskífa Payne kom út í mars á þessu ári og heitir Teardrops.
Hann hefur talað opinskátt um áfengisvanda sinn og hve krefjandi það var að takast á við frægðina svo ungur að aldri. Skömmu fyrir andlátið varð hann harðlega gagnrýndur á samfélagsmiðlum í kjölfar viðtals þar sem fyrrverandi sambýliskona hans, Maya Henry, sakaði hann um að hafa beitt sig ofbeldi.
Ljóst er að andlát Payne skilur eftir sár í brjósti margra aðdáenda hans. Hann lætur eftir sig son úr fyrra sambandi við Girls Aloud-söngkonuna Cheryl.