Óttaðist um Payne fyrir andlátið

Liam Payne.
Liam Payne. mbl.is/AFP

Hótelstjórinn á hótelinu sem breski söngvarinn Liam Payne dvaldi á er sagður hafa hringt á neyðarlínuna í gær skömmu áður en hann lést. Óttaðist hótelstjórinn að Payne myndi fara sér að voða.

Argentískir miðlar greina frá því að hótelstjórinn hafi hringt í neyðarlínuna og tilkynnt gest sem væri „á fíkniefnum og að eyðileggja herbergið“.

Er hótelstjórinn sagður hafa greint frá áhyggjum þess efnis að á herbergi gestsins væru svalir og óttaðist hann að gesturinn myndi gera eitthvað sem myndi stefna lífi hans í hættu.

Áður hafði verið greint frá því að lögreglan hefði brugðist við tilkynningu um árásargjarnan mann sem væri hugsanlega undir áhrifum fíkniefna og áfengis.

Hótelstjórinn hafði samband

Payne lést eftir fall af þriðju hæði á Casa Sur hótelinu sem hann dvaldi á í Buenos Aires í Argentínu. 

Er Payne tal­inn hafa höfuðkúpu­brotnað er hann féll um 13 til 14 metra.

Örrygismálaráðuneyti Argentínu greindi frá því í yfirlýsingu að þegar viðbragðsaðilar hefðu komið á vettvang hefði hótelstjórinn tilkynnt þeim um andlát manns sem hefði „stokkið fram af svölunum í herbergi sínu“.

Endurlífgun hefði ekki borið árangur

Einungis örfáar mínútur höfðu liðið þar til fréttir af andláti breska söngvarans höfðu borist um allan heim. 

Aðdáendur flykktust að hótelinu um kvöldið þar sem lögregla var enn að störfum.

Alberto Crescenti, yfirmaður bráðaheilbrigðisþjónustunnar í Buenos Aires, sagði við argentíska sjónvarpsstöð að „enginn möguleiki hefði verið á endurlífgun“.

Hann segir viðbragðsaðila hafa flýtt sér að Casa Sur hótelinu eftir að símtal barst neyðarlínunni klukkan 17.04.

Voru þeir komnir sjö mínútum síðar á vettvang og var Payne úrskurðaður látinn á vettvangi.

Breska utanríkisþjónustan staðfesti við fjölmiðla að hún hefði verið í samskiptum við argentísk yfirvöld vegna tilkynningar um andlát bresks manns en vildi þó ekki gefa upp nafn hans.

Uppfært: Fyrirsögn fréttarinnar hefur verið breytt.

Embætti land­lækn­is bend­ir á að mik­il­vægt sé að þeir sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir segi ein­hverj­um frá líðan sinni, hvort sem er aðstand­anda eða hafi sam­band við Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717, eða á net­spjalli 1717.is, við hjúkr­un­ar­fræðing í net­spjalli á heilsu­vera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-sam­tak­anna s. 552-2218. Píeta-sam­tök­in bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyr­ir aðstand­end­ur þeirra sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir.

Fyr­ir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi bend­ir land­læknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorg­armiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-sam­tök­un­um í síma 552-2218.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hvort sem þú gerir þér grein fyrir því eða ekki, þá þarftu að markaðssetja hæfileika þína. Þér verður trúað fyrir leyndarmáli.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Emil Hjörvar Petersen
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hvort sem þú gerir þér grein fyrir því eða ekki, þá þarftu að markaðssetja hæfileika þína. Þér verður trúað fyrir leyndarmáli.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Emil Hjörvar Petersen