Útgáfufyrirtækið Universal Music er sagt hafa rekið Liam Payne aðeins nokkrum dögum fyrir andlát hans.
Payne hafði verið á samningi hjá Capitol Records, dótturfyrirtæki Universal, frá júlí 2016 eftir að liðsmenn strákasveitarinnar One Direction ákváðu að fara hver í sína átt.
Universal birti yfirlýsingu á Instagram-reikningi fyrirtækisins í gærkvöldi og kváðust harmi slegin yfir fregnunum af dauða Paynes.
Söngvarinn gaf út sína fyrstu sólóplötu árið 2019 en seinni plata hans hafði verið í bígerð er Universal sagði honum upp. Á almannatengill hans einnig að hafa sagt upp nokkrum dögum fyrir andlátið samkvæmt The Daily Mail.
Payne hefur talað opinskátt um áfengisvanda sinn og erfiðleika tengda því að skjótast upp á stjörnuhimininn ungur að aldri.
Skömmu fyrir andlátið sætti hann mikilli gagnrýni á samfélagsmiðlum eftir að fyrrverandi sambýliskona hans, Maya Henry, hóf að tjá sig um samband þeirra og ofbeldisfulla hegðun hans í hennar garð.
Greint var frá því á miðvikudagskvöld að Payne væri látinn aðeins 31 árs að aldri eftir fall af svölum á hóteli í höfuðborg Argentínu, Buenos Aires.
Hefur síðar komið á daginn að áhyggjufullt starfsfólk hótelsins hringdi á neyðarlínuna vegna áhyggna af Payne vegna ástands hans.
Argentískir miðlar greindu frá því að hótelstjórinn hefði hringt í neyðarlínuna og tilkynnt gest sem væri „á fíkniefnum og að eyðileggja herbergið“.
Kvaðst hótelstjórinn hafa áhyggjur af því að á herbergi gestsins væru svalir og að gesturinn myndi gera eitthvað sem myndi stefna lífi hans í hættu.