Bókin Mennska eftir Bjarna Snæbjörnsson hefur verið tilnefnd til norrænu hinsegin bókmenntaverðlaunanna í flokki norrænna verka ársins 2024.
Bókin kom út í maí og fjallar um leið Bjarna, með aðstoð dagbóka sinna og bréfaskipta við fjölskyldu og vini, út úr skápnum.
Fimm bækur eru tilnefndar í flokknum sem inniheldur verk sem eru gefin út á norrænu máli eða hafa verið þýdd á úr einu norrænu máli yfir á annað.
Verðlaunin verða afehnt 11. desember í Malmö í Svíþjóð.