Sagður hafa nauðgað 13 ára stúlku

Tónlistarmaðurinn Sean Combs á yfir höfði sér fangelsisvist verði hann …
Tónlistarmaðurinn Sean Combs á yfir höfði sér fangelsisvist verði hann fundinn sekur. Ljósmynd/AFP

Tónlistarmaðurinn Sean Combs, best þekktur undir listamannsnafninu P. Diddy, hefur verið sakaður um að hafa beitt unga stúlku kynferðisofbeldi í samkvæmi sem haldið var að lokinni MTV-verðlaunahátíðinni árið 2000, eða fyrir ríflega tuttugu árum síðan.

Stúlkan sem um ræðir var aðeins 13 ára gömul.

Combs, sem var handtekinn í september, hefur fengið á sig nýjar málsóknir þar sem hann er meðal annars sakaður um nauðgun á barni undir kynferðislegum lögaldri.

Í málsókninni kemur fram að tveir þekktir einstaklingar úr Hollywood-heiminum hafi tekið þátt í athæfinu. Þeir eru ekki nafngreindir.

Stúlkan 37 ára í dag

Stúlkan, sem er núna 37 ára gömul, er titluð sem „Jane Doe” í málsskjölunum sem voru lögð fram í New York-borg á sunnudag.

Í skjölunum kemur fram að hún hafi fengið sér einn drykk í samkvæminu og byrjað að líða skringilega stuttu síðar, en Combs er sagður hafa byrlað þó nokkrum fórnarlömbum sínum ólyfjan.

„Stefnandi leitaði sér að stað til að hvíla sig, hann fór inn í það sem hann taldi vera tómt svefnherbergi, til að leggjast niður,“ segir meðal annars í málsskjölunum.

„Stuttu síðar gekk Combs inn í herbergið ásamt frægum karlmanni og vel þekktri konu. Combs gekk í átt að stefnanda með brjálað augnaráð. Hann greip hana og sagði: „Þú ert tilbúinn að djamma.“

Segir konuna hafa fylgst með

Konan heldur því fram að henni hafi verið nauðgað af Combs og ónefnda karlmanninum og segir að þekkta konan hafi fylgst með árásinni, að því er segir í umfjöllun New York Post.

Rapp­ar­inn hef­ur ít­rekað neitað sök síðan hann var fyrst hand­tek­inn í sept­em­ber síðastliðnum. Hef­ur hann verið ákærður fyr­ir kyn­lífsm­an­sal, fjár­svik og vændi. Hann er í haldi í Brook­lyn í New York og verður ekki látinn laus gegn tryggingu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér hættir til í hita augnabliksins að missa stjórn á skapi þínu, sem er ekki gott. Gakktu hægt um gleðinnar dyr og mundu að á morgun er nýr dagur með nýjum tækifærum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér hættir til í hita augnabliksins að missa stjórn á skapi þínu, sem er ekki gott. Gakktu hægt um gleðinnar dyr og mundu að á morgun er nýr dagur með nýjum tækifærum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir