Tjáði sig um handtöku dóttur sinnar

Rosie O'Donnell.
Rosie O'Donnell. mbl.is/AFP

Leikkonan Rosie O’Donnell tjáði sig um handtöku elstu dóttur sinnar, Chelsea Belle O’Donnell, á samfélagsmiðlasíðunni Instagram á sunnudag.

Chelsea Belle, sem er 27 ára gömul fjögurra barna móðir, var handtekin í Wisconsin í september og ákærð fyrir vanrækslu gagnvart barni og vörslu fíkniefna eftir að yngsti sonur hennar, hinn 11 mánaða gamli Atlas, fannst liggjandi við hliðina á pípu sem innihélt amfetamín.

Hún situr nú í fangelsi og bíður réttarhalda sem verða í byrjun nóvember.

„Við erum öll vongóð“

O’Donnell, best þekkt fyrir leik sinn í Sleepless in Seattle, The Flintstones, Harriet the Spy og Now and Then, birti fallega mynd af dóttur sinni með ungabarn í fanginu.

„Chelsea er í fréttum í dag - þetta er mynd frá betri tíma - hér er það sem fjölskyldan hefur að segja:

Því miður er þetta ekki nýtt fyrir fjölskyldu okkar - Chelsea hefur glímt við eiturlyfjafíkn í áratug - við erum öll vongóð um að hún rati út úr þessum illvíga sjúkdómi,” skrifaði O’Donnell við færsluna.

O’Donnell á fjögur uppkomin börn, tvær stúlkur og tvo drengi.  

View this post on Instagram

A post shared by Rosie O’Donnell (@rosie)

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vertu á varðbergi gagnvart tilraunum til þess að leggja steina í götu þína. Reyndu umfram allt að halda ró þinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Carla Kovach
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vertu á varðbergi gagnvart tilraunum til þess að leggja steina í götu þína. Reyndu umfram allt að halda ró þinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Carla Kovach
4
Birgitta H. Halldórsdóttir