Farið að hitna í kolunum hjá Jolie og Akala

Rómantíkin á milli Jolie og Akala náði hámarki í London …
Rómantíkin á milli Jolie og Akala náði hámarki í London í síðustu viku. Samsett mynd

Rómantíkin á milli Angelinu Jolie, 49 ára og hins fertuga breska rappara, Akala, virðist samkvæmt Page Six vera farin á flug. 

Þau sáust lauma sér saman inn á svítu leikkonunnar á The Corinthia-hótelinu í Lundúnum í síðustu viku og eyddu þar saman tveimur nóttum. Er rapparinn sagður hafa sést með Jolie aðeins tveimur tímum eftir komu hennar til Lundúna.

Jolie var stödd í Lundúnum við frumsýningu nýjustu kvikmyndar sinnar, Maria, sem sýnd var á kvikmyndahátíðinni þar í borg. Eftir frumsýninguna sáust Jolie og Akala saman við rómantískan kvöldverð á Soho House. 

Þau voru fyrst sögð vera stinga saman nefjum í maí á þessu ári, þegar Akala sást við hlið Jolie á Calabash bókmenntahátíðinni í Jamaíku, ásamt dætrum hennar Zahara og Shiloh.

Page Six

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gætir hlaupið á þig í ákefðinni í að ganga í augun á fyrirmennum. Forðastu að setja þig í slíka aðstöðu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Carla Kovach
3
Steindór Ívarsson
4
Ragnar Jónasson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gætir hlaupið á þig í ákefðinni í að ganga í augun á fyrirmennum. Forðastu að setja þig í slíka aðstöðu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Carla Kovach
3
Steindór Ívarsson
4
Ragnar Jónasson