Hvað kom fyrir andlitið á Gabrielle Union?

Gabrielle Union átti í erfiðleikum með að framkalla bros.
Gabrielle Union átti í erfiðleikum með að framkalla bros. Ljósmynd/AFP

Breytt andlit bandarísku leikkonunnar Gabrielle Union vakti mikla athygli þegar hún mætti á Academy Museum Gala-viðburðinn í Los Angeles á laugardagskvöldið.

Veltu margir fyrir sér hvort leikkonan hefði fengið sér fyllingar í kinnarnar rétt fyrir viðburðinn eða hvort að andlitsförðun hennar hefði mislukkast svona allsvakalega, en Union, sem er vön að brosa sínu breiðasta á rauða dreglinum, var mjög alvarleg í fasi.

Miklar umræður fóru af stað á síðu Fashion Bomb Daily á Instagram og voru fjölmargir sem rituðu athugasemdir um andlit Union. Aðdáendur leikkonunnar voru flestallir sammála um að hún hefði eyðilagt náttúrulegt og unglegt útlit sitt með, það sem flestir telja vera, gelísprautun.

„Af hverju gerði hún þetta við andlitið á sér? Ég er miður mín,” skrifaði einn aðdáandi leikkonunnar við færsluna á Instagram.

Union, sem fagnar 52 ára afmæli sínu í lok þessa mánaðar, var þó stórglæsileg í fjólubláum síðkjól frá tískuhönnuðinum Elie Saab. Hún gekk niður rauða dregilinn ásamt eiginmanni sínum, fyrrverandi körfuknattleiksmanninum Dwayne Wade.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Lífið leikur við þig þessa dagana og rómantíkin blómstrar. Hún er allra meina bót og byggir þig upp til frekari átaka.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Lífið leikur við þig þessa dagana og rómantíkin blómstrar. Hún er allra meina bót og byggir þig upp til frekari átaka.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan
Loka