Obama tryllti lýðinn með þekktu rapplagi

Spurning hvort Obama og Eminem ættu að gefa út lag …
Spurning hvort Obama og Eminem ættu að gefa út lag saman miðað við frammistöðu forsetans fyrrverandi í gær. Samsett mynd/SCOTT OLSON/VALERIE MACON

Rapparinn Eminem bauð Barack Obama, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, velkominn á svið á stuðningsfundi Kamölu Harris, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins, í Detroit í gær. Forsetinn fyrrverandi, 63 ára, gerði sér lítið fyrir og rappaði einn af stærstu smellum Eminem.

Eftir að rapparinn kynnti Obama á svið, hóf sá síðarnefndi ræðuna á því að vitna í lag rapparans frá árinu 2002, Lose Yourself

Á meðan mannfjöldinn fagnaði hélt Obama ótrauður áfram að rappa byrjunina á laginu, sem hlaut Grammy-verðlaunin sem besta rapplagið árið 2004. 

Rapparinn hefur verið dyggur stuðningsmaður demókrata og studdi meðal annars Obama í kosningabaráttu hans á sínum tíma.

Þá fór hann í stóra herferð til stuðnings Biden og Harris árið 2020 með yfirskriftinni: „Eitt tækifæri... Kjósið!“ Vísaði hann þar einnig í smellinn Lose Yourself.



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Málefni tengd sköttum, reikningum og skuldum hafa íþyngt þér að undanförnu. Það rofar til seinna í næstu viku. Makinn kemur þér á óvart.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
5
Ragnar Jónasson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Málefni tengd sköttum, reikningum og skuldum hafa íþyngt þér að undanförnu. Það rofar til seinna í næstu viku. Makinn kemur þér á óvart.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
5
Ragnar Jónasson