Yfirgaf eiginmanninn fyrir Hugh Jackman

Leikararnir slógu í gegn í hlutverkum sínum í söngleiknum The …
Leikararnir slógu í gegn í hlutverkum sínum í söngleiknum The Music Man. Skjáskot/Broadway.com

Broadway-stjarnan Sutton Foster hefur sótt um skilnað frá eiginmanni sínum, handritshöfundinum Ted Griffin, eftir tíu ára hjónaband. Foster lagði fram skilnaðarpappírana á þriðjudag.

Hávær orðrómur er á sveimi í Hollywood um að Foster sé þegar komin með nýjan mann upp á arminn, engan annan en ástralska sjarmörinn Hugh Jackman, en leikarinn skildi við eiginkonu sína, Deborru Lee-Furness, eftir 27 ára hjónaband síðastliðið haust.

Foster og Jackman eru sögð hafa hrifist hvort af öðru þegar þau fóru með aðalhlutverk í söngleiknum The Music Man á Broadway fyrir örfáum árum og að þá hafi farið að hrikta í stoðum hjónabandanna.

„Þau eru 100% saman og yfir sig ástfangin. Þau vilja eyða restinni af lífi sínu saman,“ sagði ónefndur heimildamaður í samtali við Page Six. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Uppfærðu óskalistann, þú ert vaxinn upp úr því sem þú hélst að þig langaði í. Nálgastu þá sem þig langar til að læra af, jafnvel þótt það kosti peninga.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Carla Kovach
3
Steindór Ívarsson
4
Ragnar Jónasson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Uppfærðu óskalistann, þú ert vaxinn upp úr því sem þú hélst að þig langaði í. Nálgastu þá sem þig langar til að læra af, jafnvel þótt það kosti peninga.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Carla Kovach
3
Steindór Ívarsson
4
Ragnar Jónasson