Ætlar að leiðrétta alvarlegar ásakanir

Armie Hammer.
Armie Hammer. Ljósmynd/AFP

Bandaríski leikarinn Armie Hammer vinnur nú hörðum höndum að því að koma sér aftur í sviðsljósið eftir nokkuð erfið ár. 

Leikarinn, best þekktur fyrir hlutverk sín í kvikmyndunum Call Me by Your Name, The Social Network og Death on the Nile, flúði til Cayman-eyja árið 2022 í kjölfar ásakana um kynbundið ofbeldi, mannát og blóðdrykkju. 

Hammer, 38 ára, ætlar nú að leiðrétta alvarlegar ásakanir í hans garð í nýjum hlaðvarpsþætti, The Armie HammerTime Podcast, en fyrsti þátturinn fór í loftið í gær, mánudaginn 28. október.

Í þættinum ræddi hann meðal annars um ásakanir um mannát og gerði óspart grín að þeim. 

„Ég ætla ekki að ljúga, mér líkar þetta. Ég segi bara eins og er: „Hei, ég er mannæta.“

Hammer auglýsti hlaðvarpsþáttinn á Instagram-síðu sinni örfáum klukkustundum áður en hann fór í loftið og sagði að fólk ætti eftir að elska hann eða hata.

View this post on Instagram

A post shared by @armiehammer



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hafðu augun hjá þér og láttu einskis ófreistað til þess að komast til botns í því máli, sem þú hefur tekið að þér. Græddur er geymdur eyrir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hafðu augun hjá þér og láttu einskis ófreistað til þess að komast til botns í því máli, sem þú hefur tekið að þér. Græddur er geymdur eyrir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Loka