Leikari úr Dawson´s Creek með krabbamein

James Van Der Beek.
James Van Der Beek. AFP

Bandaríski leikarinn James Van Der Beek segist hafa greinst með krabbamein í ristli og endaþarmi.

Beek, sem er 47 ára og er þekktastur fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Dawson´s Creek og kvikmyndinni Varsity Blues, sagði tímaritinu People frá veikindum sínum.

„Ég er með krabbamein í ristli og endaþarmi. Ég hef tekist á við þessa greiningu í einrúmi og hef tekið skref til að takast á við þetta,“ sagði hann. 

Hann bætti við að ástæða væri fyrir bjartsýni og að honum liði vel.

Karlmenn fá þessa tegund krabbameins oftar en konur. Með því að fara í skimun er hægt að greina það snemma og koma í kjölfarið í veg fyrir að það dreifi sér.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú munt fá góða hugmynd um hvernig hægt sé að bæta ákveðna hluti heima. Þú færð eitthvað gefins í dag sem mun kæta þig mikið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Solja Krapu-Kallio
4
Sarah Morgan
5
Sofia Rutbäck Eriksson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú munt fá góða hugmynd um hvernig hægt sé að bæta ákveðna hluti heima. Þú færð eitthvað gefins í dag sem mun kæta þig mikið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Solja Krapu-Kallio
4
Sarah Morgan
5
Sofia Rutbäck Eriksson