Fyrrverandi Playboy-kanína fær ekki aðgang að stefnumótaforriti

Kendra Wilkinson var meðal gesta á American Reality Television Awards …
Kendra Wilkinson var meðal gesta á American Reality Television Awards í Hollywood á mánudag. Ljósmynd/Vivien Killilea

Kendra Wilkinson, raunveruleikastjarna og fyrrverandi Playboy-kanína, vill ólm finna ástina og það í örmum auðkýfings sem er einna líklegastan að finna á bandaríska stefnumótaforritinu Raya. Stjórnendur forritsins hafa þó ekki auðveldað Wilkinson leitina þar sem hún hefur verið á biðlista í fjögur ár, en forritið hleypir ekki hverjum sem er inn, enda aðeins fyrir þá ríku og frægu.

Wilkinson, sem var eitt sinn ein af kærustum Hugh Hefner, greindi frá þessu á rauða dreglinum á mánudag.

„Ég reyndi að komast á Raya og hef verið á biðlista síðustu fjögur árin. Ég sver það. Mér verður aldrei hleypt inn, sagði Wilkinson við blaðamann People. „Alheimurinn er í rauninni að segja: „Ég er ekki tilbúinn fyrir þig. Stefnumótaheimur, Kendra fær ekki aðgang.“

Wilkinson greindi frá því í janúar síðatliðnum að hún hafi stundað skírlífi frá því hún skildi við eiginmann sinn, körfuknattleiksmanninn Hank Baskett, árið 2019. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nýr kafli er að hefjast í þínu lífi fullur af ást og gleði. Mundu að fara varlegaí í umferðinni og brosa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nýr kafli er að hefjast í þínu lífi fullur af ást og gleði. Mundu að fara varlegaí í umferðinni og brosa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Loka