Playboy-fyrirsæta tekur þátt í undankeppni Eurovision

Victoria Silvstedt stígur á svið þann 1. mars næstkomandi.
Victoria Silvstedt stígur á svið þann 1. mars næstkomandi. Skjáskot/Instagram

Victoria Silvstedt, fyrirsæta og sjónvarpskona, ætlar að taka þátt í undankeppni Eurovision í Svíþjóð þann 1. mars næstkomandi.

29 lög keppast um að taka þátt fyrir hönd Svíþjóðar í Eurovision-keppninni sem fer fram í Basel í Sviss um miðjan maí. Silvstedt mun flytja lagið Love It! eftir þá Jimmy Jansson og Thomas G:son.

Úrslitakvöld sænsku undankeppninnar fer fram þann 8. mars næstkomandi.

Silvstedt, sem er 50 ára, er vel þekkt í Svíþjóð og víða um heim. Hún var krýnd Miss World Sweden árið 1993 og hefur prýtt forsíður tímarita, þar á meðal Playboy, og gengið tískupalla fyrir þekktustu tískuhús heims. Hún hefur einnig látið taka til sín á hvíta tjaldinu og fór með hlutverk í bandarísku þáttaröðinni Melrose Place og kvikmyndunum Out Cold og Boat Trip.

Silvstedt greindi frá gleðitíðindunum á Instagram-síðu sinni í gærdag og fékk frábærar undirtektir.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú getur sannfært svo til hvern sem er um næstum hvað sem er í dag þú ert svo sannfærandi. Vinur þinn skiptir um skoðun og þú veist ekki hvað þú átt að gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Sarah Morgan
4
Solja Krapu-Kallio
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú getur sannfært svo til hvern sem er um næstum hvað sem er í dag þú ert svo sannfærandi. Vinur þinn skiptir um skoðun og þú veist ekki hvað þú átt að gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Sarah Morgan
4
Solja Krapu-Kallio
5
Torill Thorup