Bandaríski sjónvarpsmaðurinn Nick Cannon hefur verið greindur með sjálfsupphafningar-persónuleikaröskun (e. Narcissistic Personality Disorder).
Cannon ræddi opinskátt um reynslu sína af því að greinast með persónuleikaröskunina í hlaðvarpsþættinum Counsel Culture Show fyrr í mánuðinum og sagðist þurfa á hjálp að halda.
„Ég er enn að reyna að átta mig á þessu,” sagði Cannon meðal annars við viðmælanda sinn, Dr. Cheyenne Bryant, sálfræðing sem sérhæfir sig í röskunum af þessum toga. „Ég hef verið að vinna í sjálfum mér og er farin að sjá breytingar til hins betra.“
Sjónvarpsmaðurinn sagði greininguna hafa komið sér á óvart þrátt fyrir að hafa fundið fyrir nokkrum einkennum áður en hann fékk greiningu.
Einkenni narsissista eru til dæmis tilætlunarsemi, það að notfæra sér aðra, og tilfinningaleg kúgun. Þeim er einnig sama þó svo að velgengni þeirra sé á kostnað annarra og eru uppteknir af hugmyndum um völd, frama og fegurð.
Narsissistar hafa einnig mikla þörf fyrir aðdáun og hrós og upplifa sig oft og tíðum æðri öðrum.
Cannon, sem er 44 ára, hefur reglulega ratað í fjölmiðla síðustu ár, þá helst vegna barnafjölda, en sjónvarpsmaðurinn á 12 börn með sex konum.
Fyrr á árinu lét hann tryggja á sér eistun fyrir tíu milljónir bandaríkjadala eða sem samsvarar rúmlega einum milljarði íslenskra króna.