Hnefaleikabardagakonan Erika Nótt Einarsdóttir sigraði bardaga sem fram fór á dögunum. Guðrún Svava Egilsdóttir, Gugga í gúmmíbát, varð svo hrifin að hún kaus Eriku Nótt sem Guggu vikunnar í hlaðvarpsþættinum Veislan sem er í umsjón Gústa B sem stofnaði hlaðvarp eftir uppsögn á samnefndum þætti sem var á FM957.
„Ég fór á Icebox-event á föstudaginn og það var gellufight. Það voru stelpur að berja hvor aðra. Og mér fannst það svo geðveikt að horfa á þetta. Þannig að Gugga vikunnar er winner of the fight,“ segir Gugga í gúmmíbát sem er sérlega hrifin af þessari slagsmálapíu sem er á lausu.
Hægt er að hlusta á þáttinn hér fyrir neðan: